Næstkomandi mánudag verður haldinn kynningarfundur um nýundirritaðan kjarasamning sjómanna.
Fundurinn verður haldinn kl. 16:00 í sal frímúrara, Borgarmýri 1a á Sauðárkróki.
Valmundur Valmundsson, formaður SSÍ og Hólmgeir Jónsson, framkvæmdastjóri SSÍ, munu kynna samninginn.
Sjómenn eru eindregið hvattir til að mæta og kynna sér efni samningsins.
Rétt er að árétta að í atkvæðagreiðslu um samninginn verður einungis hægt að kjósa einu sinni !