Niðurstöður atkvæðagreiðslu um nýjan kjarasamning 18 aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins liggja nú fyrir en atvæðagreiðsla um samningin stóð yfir dagana 13. til 20. mars.
Á kjörskrá voru samtals 23.677 félagsmenn hjá öllum 18 aðildarfélögum SGS og var samningurinn samþykktur með 82,72% atkvæða
Atkvæði greiddu 4.156 manns eða 17.55%.
Nei sögðu 12,85% og
4,43% tóku ekki afstöðu.