Skip to main content
Aldan

Fjarðarkaup næst oftast með lægsta verðið

By maí 15, 2023No Comments
Asi Frettir Verdlag2
Bónus var ódýrasta verslunin í matvörukönnun sem verðlagseftirlit ASÍ framkvæmdi þann 9. maí. Verðið í Bónus var að meðaltali 4% frá lægsta verði, og bauð verslunin upp á lægsta verðið í 76 tilfellum. Krónan var með næst lægsta meðalverðið sem var 10% frá lægsta verði. Fjarðarkaup var næst oftast með lægsta verðið á eftir Bónus, í 29 tilvikum. Meðalverð í Fjarðarkaup var 16% frá lægsta verði, einu prósentustigi hærra en meðalverð í Nettó.

Oft einnar krónu verðmunur á Bónus og Krónunni

Á grafinu hér að neðan má sjá hve langt vöruverð verslana var að meðaltali frá lægsta verði. Ef einhver verslun hefði verið með lægsta verð á öllum vörum hefði hún fengið gildið 0% en 100% ef verðið væri tvöfalt hærra að meðaltali.

 

Af 127 vörum sem voru í könnuninni voru 99 til í bæði Bónus og Krónunni. Þar af voru 58 vörur einni krónu dýrari í Krónunni en Bónus. Hæsta verðið var oftast að finna í Iceland og næst oftast í Heimkaupum.

Minnstur verðmunur á te og kaffi og á mjólkurvöru

Innan vöruflokka var minnstur munur á hæsta og lægsta verði á te og kaffi, að meðaltali 23%, og mjólkurvörum, að meðaltali 27%

Mestur var munurinn í flokki ávaxta og grænmetis, að meðaltali 105%, en þar er miðað við kílóverð á flestum vörum. Til dæmis var aðeins 13% munur á lægsta og hæsta verði á hálfum lítra af rjóma, á meðan 60% munur var á lægsta og hæsta kílóverði á papriku.

Mikill verðmunur á vörum með sama vörumerki

Í mörgum tilfellum var  mikill verðmunur á dósamat og þurrvöru, sælgæti og snakki og á ýmissi frosinni vöru, sem er athyglisvert í ljósi þess að um nákvæmlega sömu vörur er að ræða. Sem dæmi má nefna 67% verðmun á hæsta og lægsta verði á Mutti niðursoðnum tómötum, 56% verðmun á Ora túnfiski í olíu og 70% verðmun á 2 lítra vanillu Mjúkís frá Kjörís.

Verð á dósamat og þurrvöru var oftast lægst hjá Bónus, í 8 tilfellum, og í Fjarðarkaupum, í 7 tilfellum. Iceland átti oftast hæsta verðið á sælgæti og snakki en Fjarðarkaup oftast lægsta verðið.

108% munur á Kjarna jarðaberjagraut

Af öðrum athyglisverðum verðmuni í könnuninni má nefna:

  • 108% mun á hæsta og lægsta verði á einum lítra af Kjarna Jarðaberjagraut. Lægst var verðið í Fjarðarkaup, 398 kr. en hæst í Heimkaupum, 829 kr.
  • 101% mun á hæsta og lægsta verði á Stjörnu Partý paprikusnakki sem var dýrast í Iceland, 699 kr. en ódýrast í Fjarðarkaupum, 348kr.
  • 329% mun á hæsta og lægsta kílóverði á hvítlauk. Hæst var verðið 3.369 krónur í Kjörbúðinni Sandgerði en lægst 729 krónur í Bónus.
  • 91% mun á rúlluverði klósettpappírs. Hæst var verðið í Kjörbúðinni Sandgerði, 143 krónur, en lægst 75 krónur í Nettó.

Um könnunina

Ýmsar aðferðir eru til að varpa ljósi á niðurstöður í verðkönnunum með mörgum vörum og verslunum. Til að skýra betur verð hjá þeim verslunum sem eru hvorki oft með hæsta né lægsta verðið í verðkönnun og finna út meðalverð má reikna út hlutfallslegt frávik frá lægsta verði hverrar vöru. Þannig raðast verslanirnar eftir því hversu langt verð á vörum í könnuninni er að meðaltali frá lægsta verði.

Í könnuninni var hilluverð á 127 vörum skráð niður en það er það verð sem neytandinn hefur upplýsingar um þegar hann ákveður hvort hann ætli að kaupa viðkomandi vöru. Ef afsláttur er tekinn fram á hillu er hann tekinn til greina.

Könnunin var framkvæmd í eftirtöldum verslunum: Nettó Mjódd, Bónus Hraunbæ, Krónunni Selfossi, Fjarðarkaupum, Iceland Engihjalla, Hagkaup Skeifunni, Kjörbúðinni Sandgerði og á Heimkaup.is. Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.

 

Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.

Close Menu

Aldan Stéttarfélag

Borgarmýri 1
Sauðárkróki
Ísland

T: 453 5433
E: skrifstofa@stettarfelag.is