Hótelgisting

Niðurgreiðsla vegna hótelgistingar innanlands

Félagsmenn geta fengið niðurgreiddan helming kostnaðar, þó að hámarki 7.000 kr. pr. nótt, vegna hótelgistingar innanlands, gegn framvísun löggilds reiknings hótels.

Hafa skal í huga að reikningur þarf að vera á nafni þess félagsmanns sem sækir um niðurgreiðsluna, en á reikningi þarf að koma fram upphæð kostnaðar, bókunardagsetningar og fjöldi gistinátta.
Ef greiðslustaðfesting kemur ekki fram á reikningi þarf einnig að framvísa millifærslukvittun eða annarri greiðslustaðfestingu.

Sótt er um styrki með innskráningu á MÍNAR SÍÐUR hér uppi í hægra horni heimasíðunnar.

Hér má nálgast umsókn til útprentunar:  Niðurgreiðsla vegna hótelgistingar

Hámark niðurgreiðslu á ári vegna hótelgistingar er 65.000 krónur á ári.