Íbúð á Spáni

Arenales del sol, Alicante á Spáni
________________________________________

Altómar ehf á og rekur orlofsíbúð í Los Arenales sem er úthverfi Alicante á Spáni en eigendur félagsins eru Aldan stéttarfélag, Verk Vest., Verkalýðsfélag Snæfellinga ,Verkalýðs- og sjómannafélag Sandgerðis og Verkalýðsfélag Bolungarvíkur.

Íbúðin er í raðhúsahverfinu Altomar III í Los Arenales  í úthverfi Alicanteborgar og mjög gott útsýni er til Alicante frá ströndinni í Los Arenales sem er samfelld alveg til Alicante. Akstur frá Alicante flugvelli til hverfisins tekur 10 – 15 mínútur, en um 20 mín. akstur er inn í miðborg Alicante frá íbúðinni. Auðvelt er að taka bílaleigubíl frá flugvelli og auðvelt að fylgja leiðbeiningum til áfangastaðar.

Bókanir fara fram á orlofsvef Altómar þar sem félagsmenn skrá sig inn með rafrænum skilríkjum. Nánari upplýsingar fást á skrifstofu félagsins í síma 453 5433.

Smelltu hér til að skoða myndir af íbúðinni og umhverfi hennar

Hús og búnaður
Íbúðin er nr. 13 og er á jarðhæð í raðhúsahverfinu Altomar III í Los Arenelas. Hefur hún fengið nafnið „Vinaminni“.
Í íbúðinni eru 2 svefnherbergi, setu- og borðstofa, sér eldhús og baðherbergi með sturtu. Húsinu fylgja öll venjuleg eldhúsáhöld og borðbúnaður, sængur og koddar. Loftkæling er í húsinu.
Íbúðin er í lokuðum kjarna sem ekki er hægt að komast inn í nema hafa lykil eða aðgangsheimilid. Íbúðin er vel búin öllum helstu þægindum og mjög gott aðgengi er að henni. Gistipláss er fyrir 6 fullorðna í tveimur herbergjum og svefnsófa í stofu, einnig fylgir ferðabarnarúm. Raðhúsakjarninn er mjög snyrtilegur en fyrir miðju kjarnans er sameiginleg sundlaug með barnalaug sem aðeins íbúarnir hafa aðgang að. Við hliðina á sundlauginni er stigahús niður í bílastæðakjallarann en íbúðinni fylgir sér bílastæði í bílageymslunni.

Dvalargestir losa sig við sorp í gám við byggðina. Í húsinu er sjónvarp, örbylgjuofn, þvottavél og svefnsófi í stofu. Samanbrotið barnarúm er í tösku í svefnherbergi og barnastóll í stofu. Garðborð og stólar ásamt tveim sólbekkjum fylgja og verða gestir að setja garðhúsgögn inn í lok dvalar. Ekki er gæsla við sundlaugarsvæði og bera gestir sjálfir ábyrgð á umgengni barna við sundlaugar.

Um hverfið og staðsetninguna
Los Arenales er strandbær sem býður upp á alla nauðsynlega þjónustu með verslunum og veitingastöðum. Mjög stutt er frá íbúðarkjarnanum niður á ströndina sem er í 5 – 10 mínútu göngufæri. Strandlengja Los Arenales er nánast samfelld sandfjara í átt til Alicante í norðri og til Santa Pola í suðri. Þar er mjög fjölbreytt þjónusta með úrvali veitingastaða, stórmarkaða og verslana. Um 10 mínútna akstur er til Sant Pola og um 5 mínútna akstur til Gran Alicant sem er þjónustukjarni sem ekið er í gegnum frá flugvellinum á leið til Altomar III. Um 40 mínútna akstur er til Torriveija frá Los Arenales.

Hérna má lesa umgengnisreglur fyrir íbúðina.