Skip to main content

Ríkisstjórnin kynnti viðbrögð sín við afleiðingum COVID 19 faraldursins á fyrirtæki og fjármálakerfi á fréttamannafundi þann 10.mars sl. en lét við það tilefni hjá líða að minnast á þær alvarlegu afleiðingar sem staðan hefur á atvinnu og afkomuöryggi þúsunda launafólks.

Ríkisstjórnin kynnti viðbrögð sín við afleiðingum COVID 19 faraldursins á fyrirtæki og fjármálakerfi  á fréttamannafundi þann 10.mars sl. en lét við það tilefni hjá líða að minnast á þær alvarlegu afleiðingar sem staðan hefur á atvinnu og afkomuöryggi þúsunda launafólks. Í þeim aðgerðum sem kynntar voru undir yfirskriftinni – Lífæðin varin – er ekki að finna stafkrók um viðbrögð til að mæta þeim stóra hópi fólks sem misst hefur atvinnuna á síðustu mánuðum og ástæða er til að óttast að fari stækkandi á næstunni. Engar aðgerðir voru kynntar til að efla hin félagslegu stuðningskerfi og treysta öryggi launafólks t.d. með myndalegri innspýtingu til Vinnumálastofnunar til að efla þjónustu og úrræði til stuðnings atvinnuleitendum.

Þessi viðbrögð sýna okkur fram á mikilvægi þess að samráð sé haft við fulltrúa launafólks til að tryggja jafnvægi hinna efnahagslegu- og félagslegu vídda. ASÍ krefst þess að raddir vinnandi fólks og almennings séu ávallt
við borðið þegar teknar eru afdrifaríkar ákvarðanir sem varða okkur öll og treystir á að stjórnvöld byggi frekari aðgerðir á slíku samtali.

Close Menu

Aldan Stéttarfélag

Borgarmýri 1
Sauðárkróki
Ísland

T: 453 5433
E: skrifstofa@stettarfelag.is