Skip to main content

Nú um áramótin hækkuðu laun og kauptaxtar sem hluti af umsömdum hækkunum Lífskjarasamninganna.

Nú um áramótin hækkuðu laun og kauptaxtar sem hluti af umsömdum hækkunum Lífskjarasamninganna. Almennar launahækkanir um áramótin voru 15.750 kr. á mánuði í samningum SGS/VR ásamt því að kauptaxtar hækka um 24.000 kr. á mánuði. Til viðbótar við umsamdar hækkanir taka gildi breytingar á skatta og tilfærslukerfum sem auka ráðstöfunartekjur heimilanna. Má þar nefna síðari hluta breytinga á tekjuskattkerfinu og breytingar á barnabótum sem fela í sér hækkun á skerðingarmörkum.

Breytingar á tekjuskatti einstaklinga
Nú um áramótin tóku gildi umfangsmiklar breytingar á tekjuskatti einstaklinga sem fela í sér breytingar á skattþrepum og persónuafslætti og verða til þess að draga úr skattbyrði einstaklinga með sérstakri áherslu á hina tekjulægstu. Breytingarnar eru ein af stærstu aðgerðum stjórnvalda í tengslum við Lífskjarasamninganna og voru viðbragð við gagnrýni verkalýðshreyfingarinnar á vaxandi skattbyrði launafólks. Með breytingunum aukast ráðstöfunartekjur launafólks til viðbótar við almennar hækkanir kjarasamninga og skattleysismörk hækka.

Þær breytingar sem komu til framkvæmda á áramótum fela fyrst og fremst í sér lækkun á tekjuskattshlutfalli í fyrsta þrepi, úr 35,04% í 31,45%, og hækkun þrepamarka í þrep 2 úr 336.916 kr. í 349.018 kr. á mánuði. Samhliða þessum breytingum hækkar hlutfall í miðþrepi og persónuafsláttur lækkar úr 54.628 kr. í 50.792 kr. á mán.

Dæmi:
Aðili sem árið 2020 var með 350 þús. krónur í mánaðarlaun var með 336 þús. kr. í skattstofn eftir að framlag í lífeyrissjóð hafði verið dregið frá. Alls reiknaðist 117.734 kr. í staðgreiðslu en eftir nýtingu persónuafsláttar voru greiddar 63.106 kr. í skatt og laun eftir skatt því 272.894. Fái sami aðili 15.750 kr. í almenna launahækkun á áramótum, eru mánaðarlaun nú um 365 þús. Staðgreiðsla er nú 110.563 kr. og eftir nýtingu persónuafsláttar eru greiddar 59.771 kr. í skatt og laun eftir skatt um 291 þús.  Laun hækkuðu því um 15.750 en ráðstöfunartekjur, eftir skatt um 18.454 kr. Hlutfall skattsins af launum lækkaði jafnframt úr 18% í 16,3%.

Sjá nánar í töflum á heimasíðu ASÍ

Skerðingarmörk barnabóta hækkuð
Neðri skerðingarmörk barnabóta hækkuðu einnig um áramótin. Breytingin felur í sér að barnabætur byrja ekki að skerðast fyrr en við 351 þús. kr. á mánuði en áður byrjuðu barnabætur að skerðast við 325 þús. kr. á mánuði. Þar sem skerðingar miðast við skattstofn merkir breytingin að barnabætur eru nú óskertar við launatekjur upp á 365 þús. kr. á mánuði hjá einstaklingum. Breytingar hafa einnig áhrif á hjón og sambúðarfólk en þar hækka neðri skerðingarmörkin úr 650 þús. kr. í 702 þús. kr. á mánuði. Á meðfylgjandi töflu má sjá hvernig áhrifin verða á ólíka hópa[1].

Sjá nánar í frétt Fjármála- og efnahagsráðuneytis

Close Menu

Aldan Stéttarfélag

Borgarmýri 1
Sauðárkróki
Ísland

T: 453 5433
E: skrifstofa@stettarfelag.is