Skip to main content

Atkvæðagreiðslu er nú lokið um nýjan kjarasamning á milli Starfsgreinasambands Íslands (SGS) og Sambands íslenskra sveitarfélaga sem undirritaður var 20. nóvember síðastliðinn.

Atkvæðagreiðslu er nú lokið um nýjan kjarasamning á milli Starfsgreinasambands Íslands (SGS) og Sambands íslenskra sveitarfélaga sem undirritaður var 20. nóvember síðastliðinn.

Starfsgreinasambandið fór með umboð 15 aðildarfélaga sinna og var samningurinn samþykktur í öllum félögunum, en í heildina samþykktu yfir 90% þeirra sem greiddu atkvæði.
Félögin sem SGS fór með umboð fyrir eru: Aldan stéttarfélag, AFL starfsgreinafélag, Báran stéttarfélag, Drífandi stéttarfélag, Eining-Iðja, Framsýn stéttarfélag, Stéttarfélag Vesturlands, Stéttarfélagið Samstaða, Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur, Verkalýðs- og sjómannafélag Sandgerðis, Verkalýðsfélag Grindavíkur, Verkalýðsfélag Snæfellinga, Verkalýðsfélag Suðurlands, Verkalýðsfélag Þórshafnar og Verkalýðsfélag Vestfirðinga.

Kjörsókn var í heildina 33,14%,  2.749 félagar voru á kjörskrá og atkvæði greiddu 911.
Hér má sjá hvernig atkvæði féllu í einstaka félögum.

Close Menu

Aldan Stéttarfélag

Borgarmýri 1
Sauðárkróki
Ísland

T: 453 5433
E: skrifstofa@stettarfelag.is