Skip to main content

Vert er að vekja athygli félagsmanna á nokkrum punktum varðandi lágmarkstekjur.

Vert er að vekja athygli félagsmanna á eftirfarandi punktum varðandi lágmarkstekjur.

  • Lágmarkstekjur fyrir fullt starf – kr. 280.000
  • Fyrir dagvinnu og allar bónus-, álags- og aukagreiðslur
  • Miðað við 173,33 tíma á mánuði eða 40 stundir á viku
  • Greiða skal uppbót á laun þeirra sem ná ekki kr. 280.000 fyrir dagvinnu

Dæmi: Ef taxtinn er kr. 266.000 og viðkomandi fær engar aukagreiðslur, sem taldar eru upp hér að ofan, skal greiða kr. 14.000 uppbót á launin

Með vísan í samning milli ASÍ og SA um réttindi hlutavinnustarfsmanna þá eiga þeir jafnframt rétt á lágmarkstekjutryggingu í samræmi við starfshlutfall. Þar sem taxtar eru í einhverjum tilfellum lægri en lágmarkstekjutrygging skal það bætt með eftirfarandi hætti:
Mánaðarlega skal greiða uppbót á laun viðkomandi starfsmanna sem ekki ná framangreindum tekjum, en til launa í þessu sambandi teljast allar greiðslur, þ.m.t. hverskonar bónus-, álags og aukagreiðslur, sem falla til innan ofangreinds vinnutíma. Laun fyrir vinnu umfram 173,33 stundir á mánuði og endurgjald á útlögðum kostnaði reiknast ekki með í þessu sambandi.

Almenni markaðurinn: Fyrir þá sem eru 18 ára og eldri og hafa starfað a.m.k. sex mánuði samfellt hjá sama fyrirtæki (þó að lágmarki 900 stundir)

Ríki og sveitarfélög: Fyrir þá sem eru 18 ára og eldri og hafa starfað a.m.k. fjóra mánuði samfellt hjá sömu stofnun

Close Menu

Aldan Stéttarfélag

Borgarmýri 1
Sauðárkróki
Ísland

T: 453 5433
E: skrifstofa@stettarfelag.is