Skip to main content

Aldan, stéttarfélag býður sjóðfélögum ókeypis rútuferð á fundinn með Stapa lífeyrissjóði á Blönduósi þann 1. mars. Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta og láta sig málið varða.

Sjóðfélagafundur Stapa lífeyrissjóðs þann 1. mars nk.

Fundurinn verður haldinn kl. 20:00 í fundarsal Samstöðu að Þverbraut 1 á Blönduósi

Rædd verður nýleg skýrsla um úttekt á fjárfestingarstefnu, ákvarðanatöku og lagalegu umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins 2008.

Aldan stéttarfélag mun af því tilefni bjóða upp á fría rútuferð á fundinn.
Lagt verður af stað kl. 19:00 frá Skrifstofu stéttarfélaganna, Borgarmýri 1.

Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta og láta sig málið varða.

Close Menu

Aldan Stéttarfélag

Borgarmýri 1
Sauðárkróki
Ísland

T: 453 5433
E: skrifstofa@stettarfelag.is