Skip to main content

Starfsgreinasambandið og Samtök atvinnulífsins skrifuðu undir nýjan kjarasamning í apríl 2019 vegna starfa á almennum vinnumarkaði og nú er sá samningur loks aðgengilegur á netinu.

Starfsgreinasambandið og Samtök atvinnulífsins skrifuðu undir nýjan kjarasamning í apríl 2019 vegna starfa á almennum vinnumarkaði. Sá samningur er löngum nefndur Lífskjarasamningurinn og gildir frá 1. apríl 2019 til 1. nóvember 2022.
 
Uppfærsla kjarasamninga getur verið tímafrek nákvæmnisvinna og hefur útgáfa samningsins því miður dregist alltof lengi. Nú er vefútgáfa heildarkjarasamningsins hins vegar tilbúin og aðgengileg, bæði á heimasíðu okkar sem og á heimasíðu Starfsgreinasambandsins.
 
Samningurinn verður einnig gefinn út í takmörkuðu upplagi á prenti og verður hægt að nálgast þá útgáfu á skrifstofu Öldunnar þegar þar að kemur.
 
Heildarkjarasamningur SGS og SA 2019-2022
 

Close Menu

Aldan Stéttarfélag

Borgarmýri 1
Sauðárkróki
Ísland

T: 453 5433
E: skrifstofa@stettarfelag.is