Skip to main content

Samkvæmt kjarasamningum ber atvinnurekendum að greiða starfsfólki sínu desemberuppbót í byrjun desember ár hvert.

Samkvæmt kjarasamningum ber atvinnurekendum  að greiða starfsfólki sínu desemberuppbót í byrjun desember ár hvert. Uppbótin er háð ákveðnum skilyrðum sem varða t.a.m. starfstíma og starfshlutfall á yfirstandandi ári. Desemberuppbót skal greiða í einu lagi og ofan á hana reiknast ekki orlof. Uppbótin er föst krónutala og tekur ekki hækkunum skv. öðrum ákvæðum kjarasamninga.

Full desemberuppbót árið 2020 ( miðað við 100% vinnu)
94.000 kr. hjá þeim sem vinna á almennum vinnumarkaði.
94.000 kr. hjá þeim sem vinna hjá ríki.
118.750 kr. hjá þeim sem vinna hjá sveitarfélögum.

Kjarasamningur SGS við SA (almennur vinnumarkaður)

Kjarasamningur SGS við ríkið

Kjarasamningur SGS við sveitarfélögin

Close Menu

Aldan Stéttarfélag

Borgarmýri 1
Sauðárkróki
Ísland

T: 453 5433
E: skrifstofa@stettarfelag.is