Skip to main content

Bónus var með lægsta verðið á matarkörfunni þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í lágvöruverðsverslunum og stórmörkuðum á höfuðborgarsvæðinu 10. október sl. Matarkarfan kostaði 16.086 kr. hjá Bónus en hún var dýrust hjá Víði á 19.650 kr. sem er 3.564 kr. verðmunur eða 22%.

Bónus var með lægsta verðið á matarkörfunni þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í lágvöruverðsverslunum og stórmörkuðum á höfuðborgarsvæðinu 10. október sl. Matarkarfan kostaði 16.086 kr. hjá Bónus en hún var dýrust hjá Víði á 19.650 kr. sem er 3.564 kr. verðmunur eða 22%. Oftast var 25-50% verðmunur á hæsta og lægsta verði vöru, en sjá mátti allt að 180% verðmun. Eins og svo oft áður er nánast engin verðmunur á nýmjólk og stoðmjólk eða 1%.

Eins og áður sagði var Bónus með ódýrustu körfuna á 16.086 kr. en þar á eftir kom Krónan með matarkörfu sem kostar 160 kr. meira en karfan hjá Bónus. Þar næst er Nettó með körfu á 17.439 kr. sem er 8% dýrari en karfan í Bónus og hjá Fjarðarkaupum kostaði karfan 17.532 kr. eða 9% meira en sú ódýrasta.

Matarkarfan var dýrust hjá Víði á 19.650 kr. eða 22% dýrari en ódýrasta matarkarfan, hún var 17% dýrari hjá Samkaupum-Úrvali og 15% dýrari í Nóatúni.

Mestur verðmunur var á appelsínum sem voru dýrastar á 498 kr./kg. hjá Víði en ódýrastar á 178 kr./kg. hjá Iceland sem er 180% verðmunur. 10 egg frá Brúnegg voru dýrust á 798 kr. hjá Samkaupum-Úrvali en ódýrust á 598 kr. hjá Bónus en það gerir 200 kr. verðmun eða 33%. Einnig má nefna að Nescafé gull 200 gr. var dýrast á 1.398 kr. hjá Iceland en ódýrast á 959 kr. hjá Bónus en það gerir 439 kr. verðmun eða 46%.

Sjá nánar á heimasíðu ASÍ

Matarkarfan samanstendur af 48 almennum neysluvörum til heimilisins t.d. mjólkurvörum, morgunkorni, grænmeti, kjöti, drykkjarvörum, ásamt ýmsum pakkavörum, dósamat og fleiru.

Í könnuninni var skráð niður hilluverð vöru eða það verð sem neytandinn hefur upplýsingar um inni í búðinni að hann eigi að greiða fyrir vöruna. Þegar skýrt er gefið til kynna að veittur sé afsláttur af merktu verði við kassa var skráð afsláttarverð. Til að auðvelda verðsamanburð er skráð mælieiningaverð vöru, þar sem pakkastærðir eru mismunandi eftir verslunum.

Könnunin var gerð á sama tíma í eftirtöldum verslunum; Bónus, Krónunni, Nettó, Fjarðarkaupum, Iceland, Nóatúni, Víði, Samkaupum Úrval og Hagkaupum.

Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.

Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.

 

Close Menu

Aldan Stéttarfélag

Borgarmýri 1
Sauðárkróki
Ísland

T: 453 5433
E: skrifstofa@stettarfelag.is