Skip to main content

Á undanförnum árum hefur Aldan lagt til fjármagn til samfélagsaðstoðar í Skagafirði og ekki varð breyting frá því á þessu ári.

Á undanförnum árum hefur Aldan lagt til fjármagn til samfélagsaðstoðar  í Skagafirði.

Ekki varð breyting frá því á þessu ári og lagði félagið til styrki samtals að upphæð  300.000 krónur sem afhentir voru félagsþjónustu sveitarfélagsins og kirkjunni sem munu sjá um úthlutun þessara styrkja til þeirra sem á þurfa að halda en því miður er víða þröngt í búi hjá fjölskyldum og einstaklingum í okkar litla samfélagi.

Á meðfylgjandi mynd sjást þær séra Sigríður Gunnarsdóttir og Aðalbjörg Hallmundsdóttir félagsráðgjafi sveitarfélagsins taka við gjöfinni úr hendi formanns.

Close Menu

Aldan Stéttarfélag

Borgarmýri 1
Sauðárkróki
Ísland

T: 453 5433
E: skrifstofa@stettarfelag.is